Má ég benda fólki á:
Afmælisbarn
mánudagur, október 9, 2006Afmælisbarn dagsins er engin önnur en uppáhalds druslan mín í öllum heiminum. Innilega til hamingju með daginn beíbí
Hér er svo sæt mynd af the drusl, enda er hún alltaf sæt
Afmælisbarn
þriðjudagur, september 26, 2006Afmælisbarn dagsins er hann Halli vinur og fær hann að sjálfsögðu innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins. Hann er núna komin í hóp fullorðna fólksins ![]()
Venju samkvæmt myndi ég senda honum knús og kossa en ég gaf honum þá bara í eigin persónu í gærkveldi
Vona að þú hafir notið matarins, minn kvöldmatur stóð svo sannarlega fyrir sínu
Síðasta færslan frá Bretlandi
þriðjudagur, september 12, 2006Þá er ævintýringu víst senn að ljúka, aðeins rúmlega 3 klukkutímar í brottför frá Birmingham. Frekar skrýtin tilfinning að vera að fara heim og kveðja Brum, á nefnilega eftir að sakna þess að búa og dvelja hérna. Kem væntanlega bara aftur í mýflugumynd, svona til að útskrifast og svo aðeins til að versla pínu.
Framundan er virkilega skemmtilegt ferðalag, eða þannig. Tökum rútuna til rétt eftir miðnætti og komum til Gatwick tæplega fjórum tímum síðar. Þá tekur við bið á flugvellinum í ca. 3 tíma og loks er það 3 tíma flug til Íslands. Semsagt um 10 klukkutíma ferðalag, bara til að komast til Íslands frá Bretlandi.
Læt þetta duga í bili og sjáumst heima á Íslandi.
Eitt stykki meistararitgerð :)
föstudagur, september 8, 2006Í dag er ég glöð, afskaplega glöð því ég er búin með ritgerðina mína og búin að binda inn og skila henni *gefsjálfrimérstórtklappábakið*
Var frekar búin á því þegar ég kom heim, enda lítið um svefn undanfarið og mikið stress í gangi. Lagði mig aðeins og svaf örlítið lengur en ég ætlaði, en það er nú bara í fínu lagi. Fór svo í Tesco að kaupa vatn og eitthvað til að borða í kvöldmatinn en endaði á því að kaupa takeaway á Rooster House, sem er kjúklingastaður. Þetta var nú bara hin besta máltíð
Keypti mér líka Breezer til að halda upp á ritgerðaskilin og sötra einn svoleiðis núna og sörfa netið án samviskubits yfir því að vera ekki að læra.
Litla Dýrið er svo væntanlegt um kvöldmatarleytið á morgun og ég hlakka bara til að hitta hana. Hún reyndar afþakkaði að fara í Bullring á morgun, þrátt fyrir að það verði opið í rúmar 40 mínútur eftir að hún mætir á svæðið, skilettaeggi.
Í lokin þá fylgir hér afskaplega sæt mynd

Á skjaldarmerkinu stendur: Per Ardua Ad Alta sem er mottó Birminghamháskóla. Á ástkæra ylhýra útleggst það sem: Með mikilli vinnu nær maður hæstu hæðum. Eða eitthvað álíka, enska hefur aldrei verið mín sterka hlið
Allt að smella saman
þriðjudagur, september 5, 2006Enda líka eins gott þar sem ég á einungis eftir að dvelja hér í viku í viðbót.
Sendi uppkast að ritgerðinni (eða dúllunni eins og sumir vilja að ég kalli hroðbjóðinn) til leiðbeinandans og fékk mjög jákvæð viðbrögð tilbaka, úff var sko með stóran klump í maganum yfir þessu. Þannig að nú á ég bara eftir að leggja lokahönd á verkið, klára inngang og niðurstöður og það er nú að mestu leyti til staðar í hausnum á mér, þarf bara að koma því niður á blað
Svo er bara að lesa verkið yfir í heild sinni og gera þessar endalausu smávægilegu leiðréttingar.
Fékk svo að fresta því að byrja í vinnunni, í einhverju bjartsýniskasti sagði ég að gæti byrjað þann 15. sept en finnst það svona heldur tæpt. Þannig að ég hafði samband og ég fæ að byrja í vikunni á eftir. Það verður æðislegt að fá þarna nokkra daga til að ná sér niður eftir törnina hérna úti, koma sér fyrir og bara hreinlega slappa örlítið af.
Þarf svo að fara á morgun í bankann og loka reikningnum mínum, en það þarf víst að gefa þeim fjóra daga frest til að græja þetta (jább Bretar og skriffinnska). Nota væntanlega tækifærið til að prenta ritgerðina út (til að lesa yfir) og finna út nákvæmlega í hvaða húsi innbindi-dótið er.
Semsagt allt að gerast og allt að smella saman. Það er líka talsverður léttir enda stress undanfarna vikna búið að vera mikið og hrikalega gott að geta sofið almennilega aftur
Til að halda upp á þetta allt saman þá ætla ég að splæsa í Dómínós í kvöld, nammi namm.
Greetings from Victoria Hall
Sunnudagur, september 3, 2006Eins gott að internetið virki! Hah, eitthvað hef ég greinilega fundið á mér því auðvitað virkaði blessað internetið ekki. Samt fínt system sem þeir eru með, maður fær aðgangskóda og á bara að opna þann vafra sem maður notar og þá kemur upp skráningarsíða og maður slær inn kódann og eitthvað smá í viðbót og voilá internet. Neeeema hvað þetta var ekki alveg að gera sig. Fékk fyrst ekki upp réttu síðuna, hún lá semsagt niðri. Beið í nokkurn tíma og reyndi svo aftur og þá kom síðan upp, ég sló inn kódann og fékk bara upp blankó síðu. Reyndi þetta nokkrum sinnum og hringdi svo í þjónustusímann og var þá tjáð að allt internet samband í Victoria Hall væri niðri og það væri viðgerð í gangi og þetta ætti að komast í lag á sunnudag (nota bene, þetta var á föstudag). Í morgun var svo bréf frammi merkt mér og þar var nýr aðgangskódi, fór aftur á netið og aftur gerðist það sama. Prófaði þetta af og til í dag en ekkert gerðist. Hringdi aftur í þjonustusímann og þá kom í ljós að ég var ekki með réttan kóda (hann var sko handskrifaður á blaðið) en kerfið samt eitthvað bilað þannig að þeir gera þetta manually fyrir mann. Fór niður í móttöku og jújú var stafabrengl í kódanum, upp aftur og hringdi aftur og þá loksins komst þetta í lag og ég gat farið á internetið.
Samt alveg ótrúlegt hvað maður er háður þessa blessaða neti, bæði í leik og starfi. Var að vísa í grein á netinu í ritgerðinni minni og hafði bara sett slóðina á greinina með en ekkert meira, greinilega ekki gert ráð fyrir að maður kæmist EKKI á netið
Hef annars náð að vinna slatta í ritgerðinni um helgina enda veitti mér ekki af, tapaði tveimur heilum og dýrmætum dögum vegna flutninga og tilheyrandi. Leiðbeinandinn kemur úr fríi í fyrramálið og ég þarf að vera búin að senda uppkast til hans þá. Hef því til ca. 8 í fyrramálið til að græja rest. Sé fyrir mér að það verði lítið um svefn næstu 14 klukkutímana.
Bæ bæ Jarratt Hall
föstudagur, september 1, 2006Síðustu línurnar sem ég mun skrifa í Jarratt Hall
á nú eftir að sakna Flat 47 og herbergisins míns.
Bara eftir að slökkva á tölvunni og flytja síðustu hlutina. Næsta færsla verður svo frá Victoria Hall. Eins gott að internetið virki.
Moving day
föstudagur, september 1, 2006Þá er víst komið að því, í dag er nefnilega moving day og ég flyt yfir í Victoria Hall.
Síðustu dagar hafa verið mjög svo annasamir, bæði vegna flutninga og ritgerðarskrifa. Verð að viðurkenna að það er frekar erfitt að einbeita sér að ritgerðinni þegar allt er á hvolfi í kringum mann og fullt að gerast.
Í gær þá kvöddum við Mabelle og verður hennar sárt saknað
Frekar skrýtin tilfinning að það séu allir að fara í sitthvora áttina, restin af Flat 47 verður áfram í Brum eitthvað áfram en allir í sitthvoru horni. Ég og Klyne drekktum sorgum okkar í gær með því að fá okkur Strudel og custard, svona for old time´s sake
Dótið okkar átti að vera sótt í morgun klukkan 8 þannig að ég stillti klukkuna mína á 7:10 svo ég hefði nú örugglega nægan tíma. Klukkan 7:11 bankar Jónas til að fá blöð hjá mér til að setja á kassana og klukkan 7:12 hringir móttakan og tjáir mér að flutningabíllinn sé komin!!! Yikes og ekki allt ready. Gaurinn var bara rólegur á því (enda átti hann ekki að koma fyrr en klukkan 8!!!) og þetta reddaðist. En ómæ hvað kassarnir mínir voru þungir og ég bý á fokkings þriðju hæð, sem betur fer hjálpaði Jónas mér því flutningamenn í Bretlandi mega það ekki, af einhverjum undarlegum ástæðum.
Hélt svo áfram að pakka niður dótinu mínu og hélt ég ætti bara svona smá eftir en það var víst aðeins meira en það. Alveg merkilegt hvað þetta smá verður alltaf mikið
Pakkaði restinni niður, þreif baðherbergið og hillurnar í herberginu og svo klukkan 11 var komið að næsta holli. En þá var dótið hennar Klyne sótt og ég get svo svarið það að hún hlýtur að vera að flytja gullstangir eða breska múrsteina til Filippseyja, kassarnir hennar voru mjög þungir. Er sko alveg búin með líkamsræktina fyrir síðustu viku, þessa viku og næstu viku líka
Nú þarf ég bara að fara með restina af dótinu mínu yfir og klára svo að þrífa og tæma skápinn minn í eldhúsinu. Ég og Klyne flytjum út í dag en Fiona fer í fyrramálið.
Varð ekki ýkja hrifin af herberginu mínu í Victoria, það er í eldri hluta húsanna og frekar sjabbí og úr sér gengið. Baðherbergið er svo lítið að það er ekki hægt að skipta um skoðun þar inni! En ágætis skápapláss og stórt rúm. Eldhúsið/setustofan er ekkert voðalega spennandi heldur, eldunarrýmið er álíka stórt og baðherbergið og setustofan örlítið stærri. Eins gott að ég verð bara þarna í tæpar tvær vikur.
Tinky skrifaði